2016-09-01 16:14:16 CEST

2016-09-01 16:14:16 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Akureyrarbær - Ársreikningur

Árshlutareikningur fyrir A-hluta Akureyrarbæjar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2016


Rekstur í þokkalegu jafnvægi

Árshlutareikningur fyrir A-hluta Akureyrarbæjar fyrir tímabilið 1. janúar til
30. júní 2016 var lagður fram í bæjarráði í dag. Árshlutauppgjörið er
óendurskoðað. 

Rekstrarniðurstaða A-hluta á fyrri hluta ársins var neikvæð um 155,3 milljónir
króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstarhalli yrði 380 milljónir króna á
tímabilinu. Afkoman er því nokkru betri en áætlun gerði ráð fyrir. 

Samtals námu tekjur 8.209 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir að tekjur
yrðu 8.100 milljónir. Skatttekjur voru 5.043 milljónir króna sem er 173
milljónum umfram áætlun eða 3,56%. Tekjur frá Jöfnunarsjóði námu 1.254
milljónum króna sem er tæpum 9% lægra en áætlun gerð ráð fyrir. Aðrar tekjur
voru 1.911 milljónir sem er 59 milljónum umfram áætlun eða 3,17%. 

Rekstrargjöld voru samtals 8.319,5 milljónir króna sem er 181,3 milljónum eða
2,23% umfram áætlun. Laun og launatengd gjöld námu 5.085 milljónum króna en
áætlun gerði ráð fyrir 4.828 milljónum króna. Frávikið skýrist að stærstu leyti
af breytingu á gjaldfærðu áföllnu orlofi en það hækkaði um 162,6 milljónir
króna, auk áhrifa nýrra kjarasamninga sem gerðir voru á tímabilinu. Annar
rekstrarkostnaður var 2.838 milljónir króna sem er 48 milljónum undir áætlun. Í
öðrum rekstrarkostnaði er m.a. gjaldfærður á aðalsjóð halli á Öldrunarheimilum
Akureyrabæjar (sem er B-hluta fyrirtæki) að fjárhæð 208 milljónir króna. 

Fjármagnsgjöld, nettó, námu 45 milljónum króna sem er 298 milljónum minna en
áætlun gerði ráð fyrir. 

Samkvæmt sjóðsstreymi nam veltufé frá rekstri 422 milljónum króna eða 5,14% af
tekjum.    Fjárfestingahreyfingar námu 308 milljónum króna og
fjármögnunarhreyfingar 244 milljónum króna.  Afborganir lána námu 311 milljónum
króna. Engin ný langtímalán voru tekin á tímabilinu. Handbært fé var 1.575
milljónir króna. 

Litlar breytingar urðu á efnahag: fastafjármunir námu 23,6 milljörðum og
veltufjármunir 3.498 milljónum króna. Eigið fé var11.474 milljónir króna en var
11.630 milljónir um síðustu áramót. Langtímaskuldir og skuldbindingar námu
12.346 milljónum króna en námu 12.459 milljónum króna í lok síðasta árs.
Skammtímaskuldir voru 3.303 milljónir króna en voru 3.079 milljónir króna um
sl. áramót. 

Veltufjárhlutfall var 1,06 á móti 1,08 í lok síðasta árs. Eiginfjárhlutfall var
42%. 



Nánari upplýsingar veitir:

Dan Brynjarsson fjármálastjóri

Sími 460-1000