2009-08-28 18:24:58 CEST

2009-08-28 18:25:58 CEST


Islandic English
Sparisjóðurinn í Keflavík - Fjárhagsdagatal

- Breytingar á birtingaráætlun


Undanfarna mánuði hefur verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu
Sparisjóðsins í Keflavík en þeirri vinnu miðar samkvæmt áætlun.  Birting
uppgjörs fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2009 mun frestast vegna þessarar vinnu.
 Birtingardagur verður kynntur síðar og verður uppgjörið birt með upplýsingum
um áhrif fjárhagslegrar endurskipulagningar á fjárhagsstöðu sjóðsins. 

Nánari upplýsingar veitir Angantýr V. Jónasson sparisjóðsstjóri í síma 4216605