|
|||
2015-11-09 17:57:10 CET 2015-11-09 17:58:11 CET REGULATED INFORMATION Fagfjárfestasjóðurinn ORK - FyrirtækjafréttirFORK 17 0901 – Tilboð í skuldabréfaeign sjóðsinsFagfjárfestasjóðurinn ORK er útgefandi skuldabréfaflokksins FORK 17 0901 sem er skráður hjá Nasdaq OMX Íslandi. Sjóðnum hefur borist tilboð í stærstu eign sína sem er skuldabréf útgefið af Magma Energy Sweden ab. Tilboðið felur í sér að útgefandi gefi út nýtt skuldabréf til 12 ára að verðmæti sem nemur að jafnvirði ISK 5.350 milljónum, gefið út í USD. Vextir skuldabréfsins verða 5,5%. Jafnframt verða tryggingar í formi undirliggjandi hlutabréfa í HS Orku 1.700 milljónir hluta. Samkvæmt 12. grein reglna sjóðsins mun sjóðurinn óska eftir afstöðu Reykjanesbæjar til tilboðsins, geri Reykjanesbær það að tillögu sinni að tilboðinu verði tekið mun sjóðurinn taka tilboðinu með fyrirvara um samþykki tilskilins meirihluta kröfuhafa sjóðsins. Nánari upplýsingar veitir Rekstrarfélag Virðingar hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 5856500 |
|||
|