2015-11-12 19:52:32 CET

2015-11-12 19:53:33 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf.: Tilkynning um undirritun Regins hf. á samkomulag um kaup á fasteignasöfnum Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf.


Þann 12. nóvember 2015 var undirritað samkomulag milli Regins hf. og eigenda
fasteignafélaganna Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf. um kaup Regins á hlutafé
félaganna. 

Fyrirhuguð kaup á félögunum miðast við að heildarvirði fasteignasafnanna sé
10.050 m.kr. og að greitt verði fyrir eignarhluti í félögunum með hlutafé í
Regin hf. að nafnverði 134.500.000 hlutir. Á fasteignasöfnunum hvíla lán sem
nema um 7.500 m.kr., skilmálar lánanna bjóða upp á endurfjármögnun án
kostnaðar. 

Fasteignasöfnin byggjast upp á góðum fasteignum  með um 93% útleiguhlutfall 
miðað við fermetra safnanna og leigutekjur eru um 900 m.kr á ársgrundvelli. 
Fasteignasöfnin sem Reginn eignast, verði af kaupunum, telja 23 fasteignir og
er heildar fermetrafjöldi fasteignasafnanna um 42 þúsund fermetrar. 
Fasteignasafnið hentar vel starfsemi og áherslum Regins en megnið af safninu
eru eignir með góðu og traustu tekjustreymi byggt á langtíma samningum en hluti
safnsins eru eignir með lægri meðaltekjur byggðar á skemmri samningum og gefa
þ.a.l. möguleika á endurskipulagningu. 

Helstu eignir félaganna á  höfuðborgarsvæðinu eru: Mjölnisholt 12-14, Lágmúli
6-8, Hlíðasmári 4, Hlíðasmári 6, Hlíðasmári 12, Túngata 7, Suðurhraun 3,
Dalshraun 15, Fiskislóð 53-59, Hólmaslóð 4, Hólmaslóð 2, ásamt nokkrum minni
eignum. Utan höfuðborgarsvæðis eru 5 eignir, allar í útleigu. Meirihluti
fasteignanna er í 100% eigu félaganna. Leigutakar eru um 100 talsins. Ríki,
sveitarfélög, stærri og meðalstór fyrirtæki standa á bakvið 90% af leigutekjum
safnsins.  Ríki og sveitarfélög eru 16% af leigutekjum. Tólf leigutakar í fimm
eignum standa á bak við 60% leigutekna safnsins. 

Undirritað samkomulag aðila er háð fyrirvara um að niðurstaða
áreiðanleikakannana leiði ekki í ljós atriði sem breyta því mati Regins sem
lagt er til grundvallar kaupunum. Auk þess er fyrirvari um að hluthafar  Regins
hf. samþykki hlutafjáraukningu á hluthafafundi og að hluthafar falli frá
forgangsrétti til áskriftar að hinu nýja hlutafé. Þá er fyrirvari um samþykki
Samkeppniseftirlitsins og að nýtt hlutafé verði skráð í Kauphöll. 

Ef af kaupunum verður er áætlað að EBITDA Regins hækki að lágmarki um 720
milljónir króna á ársgrundvelli og eignasafn stækki um 15% miðað við fermetra.
,,Yield“ kaupanna er yfir 7,1%. Kaupin eru í samræmi við  fjárfestingarstefnu
Regins hf. sem felur í sér markmið um að auka hlutdeild í atvinnuhúsnæði á
höfuðborgarsvæðinu og stækkun með innri vexti og fjárfestingu í arðbæru
atvinnuhúsnæði. 

Nýr eignarhlutur í Regin, ef af verður, yrði tæp 9% sem skiptist á nokkra
aðila. Af þessum aðilum yrði enginn með stærri hlut en 2 % í Regin að
undanskyldum Sigurði Sigurgeirssyni fagfjárfesti. Í gegnum eignarhaldsfélag
hans yrði Sigurður  6. stærsti hluthafinn í Reginn eftir viðskiptin, gangi þau
eftir. Sölubann yrði á hlutum í Regin þannig að 30% hlutanna verða seljanlegir
við afhendingu, 60% eftir 6 mánuði og 100% eftir 9 mánuði frá greiðsludegi. 

Ráðgjafar Regins hf. í viðskiptum þessum eru Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og
LEX Lögmannsstofa. Ráðgjafi eigenda fasteignasafnanna er Centra
Fyrirtækjaráðgjöf hf. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262