|
|||
2013-10-02 00:25:16 CEST 2013-10-02 00:26:17 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumCORRECTION: Breyting á stjórn ÍbúðalánasjóðsHrund Hafsteinsdóttir hefur beðist lausnar úr stjórn Íbúðalánasjóðs og hefur félags- og húsnæðismálaráðherra skipað Rósu Guðbjartsdóttur í hennar stað sem varaformann stjórnar sjóðsins. Rósa Guðbjartsdóttir er fædd 29. nóvember 1965 og er stúdent frá Flensborgarskóla og með BA í stjórnmálafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði sem fréttamaður á Stöð 2 og Bylgjunni 1990 - 1999. Hún var framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna 2001 - 2006. Frá árinu 2006 hefur Rósa setið í bæjarstjórn og bæjarráði Hafnarfjarðar. Hún hefur verið ritstjóri BF-útgáfu (Bókafélaginu) frá 2009. Á árunum 2007 - 2013 var Rósa varaþingmaður og sat m.a. á Alþingi frá 1. október 2008 til 31. desember 2008. Rósa hefur verið formaður Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna frá 2009 og í fagráði Velferðarsjóðs íslenskra barna frá 2001. |
|||
|