2013-05-02 16:20:56 CEST

2013-05-02 16:21:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og
LSS150434 þann 30. apríl 2013. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 3. maí
2013. 

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu
skuldabréfa lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10%
af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til
kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á
samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það
magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í LSS150434 fyrir ISK
57.500.000. Lánasjóðurinn selur ISK 57.500.000 af eigin bréfum sjóðsins. Selt
magn í flokki LSS150434 nemur því að nafnvirði ISK 1.006.500.000 á
ávöxtunarkröfunni 3,20%. Útistandandi fyrir voru ISK 2.425.000.000.
Heildarstærð flokksins er nú ISK 3.374.000.000. 

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is