|
|||
2008-05-27 11:49:52 CEST 2008-05-27 11:50:51 CEST Exista hf. - YfirtökutilboðNiðurstaða tilboðs til hluthafa Skipta: Exista með yfir 99% hlutafjárYfirtökutilboð Exista hf. (“Exista”) til hluthafa Skipta hf. (“Skipti”) sem tók gildi 31. mars rann út kl. 16:00 í gær, mánudaginn 26. maí, eins og fram kom í opinberu tilboðsyfirliti Exista frá 27. mars sl. Tilboðið var samþykkt af hluthöfum sem áttu alls 4.225.224.096 hluti í Skiptum eða sem nemur 56,32% hlutafjár í félaginu. Fyrir tilboðið fór Exista með 43,68% hlutafjár í Skiptum í gegnum dótturfélög sín, Exista B.V., Vátryggingafélag Íslands hf. og Líftryggingafélag Íslands hf., eða 42,90% þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárhækkunar Skipta 31. mars sl. vegna frágangs á kaupum félagsins á Sensa ehf. og Anza hf. Exista hefur því tryggt sér 99,22% hlutafjár í Skiptum og mun fara með samsvarandi atkvæðisrétt í félaginu þegar uppgjör á yfirtökutilboðinu hefur farið fram. Hluthafar Skipta sem samþykktu tilboðið munu fá kaupverðið greitt eigi síðar en 2. júní 2008 í samræmi við skilmála tilboðsins. Exista mun óska eftir samþykki stjórnar Skipta við því að aðrir hluthafar Skipta sæti innlausn á hlutum sínum í félaginu eins skjótt og auðið er. Frekari upplýsingar veitir: Samskiptasvið Exista Sigurður Nordal framkvæmdastjóri sími: 550 8620 ir@exista.com Um Exista Exista hf. starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum vátrygginga og eignaleigu undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar, og sem kjölfestueigandi í Sampo Group og Kaupþingi banka. Exista er jafnframt alþjóðlegur fjárfestir, meðal annars í Bakkavör Group, Storebrand og Skiptum. Exista er skráð á Nasdaq OMX á Íslandi og eru hluthafar um 30 þúsund. Upplýsingar um Exista er að finna á vefsíðu félagsins, www.exista.com. |
|||
|