2014-04-29 15:00:49 CEST

2014-04-29 15:01:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Ársreikningur

Össur - Fyrsti ársfjórðungur 2014


Fyrsti ársfjórðungur 2014

  * Hagnaður jókst um 96% milli ára. Hagnaðurinn nam 11 milljónum Bandaríkjadala
    og 9% af sölu, samanborið við 6 milljónir dala og 6% af sölu á fyrsta
    ársfjórðungi 2013.
  * Sala nam 121 milljón Bandaríkjadala, samanborið við 97 milljónir dala á sama
    tímabili 2013. Söluvöxtur var 24%, þar af 6% innri vöxtur, hvortveggja mælt
    í staðbundinni mynt.
  * Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 28%, þar af 2% innri vöxtur, hvort
    tveggja mælt í staðbundinni mynt.
  * Sala á stoðtækjum jókst um 19%, þar af 12% innri vöxtur, hvort tveggja mælt
    í staðbundinni mynt.
  * Framlegð nam 76 milljónum Bandaríkjadala og 63% af sölu, samanborið við 60
    milljónir Bandaríkjadala og 62% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2013.
  * EBITDA framlegð nam 20 milljónum Bandaríkjadala og 17% af sölu, samanborið
    við 14 milljónir dala og 14% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2013.
  * Vegna árstíðabundinna sveiflna er handbært fé frá rekstri minnst á fyrsta
    ársfjórðungi. Handbært fé frá rekstri nam 12 milljónum Bandaríkjadala og
    10% af sölu, samanborið við 9 milljónir dala og 9% af sölu á sama tímabili
    2013.
  * 2. apríl 2014 var lánasamning félagsins breytt og hann framlengdur um þrjú
    ár, eða fram til ársins 2019. Meðalvextir eru 105 bps + LIBOR/EURIBOR sem
    breytist í takt við skuldsetningu félagsins. Samstarfsbankar Össurar eru
    ING, Nordea og SEB.

Áætlun 2014

Áætlun stjórnenda fyrir árið:

  * Söluvöxtur í staðbundinni mynt á bilinu 14-16%.
  * Innri söluvöxtur á bilinu 2-4%, mælt í staðbundinni mynt.
  * EBITDA sem hlutfall af veltu, á bilinu 17-19% af sölu.
  * Fjárfestingar (CAPEX), á bilinu 2,5-3,5% af sölu.
  * Virkt skatthlutfall í um 26%.

Jón Sigurðsson, forstjóri:"Niðurstöður  fyrsta ársfjórðungs eru í takt  við okkar væntingar. Við sjáum enn
einn  ársfjórðunginn þar sem arðsemin er mjög góð og rekstrarhagnaður tvöfaldast
á  milli ára.  Aðhaldsaðgerðir sem  við fórum  í á  síðasta ári og endurhönnun á
ferlum  hafa jákvæð áhrif, en einnig er   ánægjulegt að sjá að markaðsskilyrði á
stoðtækjamarkaðnum  í Bandaríkjunum er að þróast í rétta átt. Sölu vöxtur í EMEA
heldur  áfram  að  vera  stöðugur.  Í  byrjun  april framlengdum við lánasamning
félagsins  um þrjú ár, eða fram til ársins 2019 og endurspegla lánakjörin sterka
fjárhagslega stöðu Össurar og góðar framtíðarhorfur."

Össur hf. uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung - morgunverðarfundur með
markaðsaðilum föstudaginn          2. maí kl. 8:30

Miðvikudaginn   30. apríl  kl.  10:00 verður  símafundur  með  fjárfestum  og  á
föstudaginn  2. maí býður félagið markaðsaðilum á Íslandi á morgunverðarfund þar
sem Sveinn Sölvason, fjármálastjóri mun fara yfir niðurstöður fjórðungsins.

Símafundur 30. apríl kl.10:00
Innhringinúmer fyrir símafund: 800-8660

Morgunverðarfundur 2. maí kl. 8:30
Staður: Össur hf, Grjótháls 5, 4. hæð


[HUG#1781032]