2009-10-09 11:59:10 CEST

2009-10-09 12:00:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Exista hf. - Fyrirtækjafréttir

- Exista stefnt af skilanefnd Kaupþings banka hf.


Exista hefur borist stefna frá skilanefnd Kaupþings banka hf. þar sem gerðar
eru þær dómkröfur að Exista greiði bankanum samtals tæplega 20,1 milljarð króna
vegna gjaldmiðlasamninga sem upphaflega voru gerðir við Kaupþing banka hf.
Skilanefnd Kaupþings banka hf. krefst einnig viðurkenningar á rétti til
innstæðu á bankareikningi Exista í Nýja Kaupþingi banka hf. að fjárhæð tæplega
12,9 milljarða króna. Exista mun taka til varna í málinu enda telur félagið
skilanefnd Kaupþings banka hf. ekki eiga rétt til innstæðu á bankareikningi
félagsins hjá Nýja Kaupþingi. Þá telur Exista að félagið eigi kröfur á Kaupþing
banka hf. á grundvelli gjaldmiðlasamninganna. 

Gjaldmiðlasamningarnir við Kaupþing banka hf. voru gerðir til að verjast
gengissveiflum, meðal annars í íslensku krónunni, en Exista færði reikninga
sína í evrum þar sem meirihluti eigna og skulda félagsins voru í erlendum
gjaldmiðlum. Þrátt fyrir að Exista hafi með þessum hætti leitast við að verja
eigið fé sitt þá hafði lækkun krónunnar neikvæð áhrif á eigið fé Exista.
Félagið hefur allt frá hruni íslenska fjármálakerfisins í október 2008 leitast
við að ná samningum við skilanefnd Kaupþings banka hf. um uppgjör gagnkvæmra
krafna en hefur ekki getað sótt rétt sinn fyrir dómstólum vegna ákvæða laga nr.
125/2008 („neyðarlaganna“). Telur Exista því jákvætt að málið sé nú komið í
þann farveg að niðurstaða fáist fyrir dómstólum um slíkt uppgjör.