2018-01-09 16:54:58 CET

2018-01-09 16:55:59 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska
HS Veitur hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Skuldabréfaútboð – HSVE 310138


 

HS Veitur hf. hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokknum HSVE 310138. Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og greiðast til baka með jöfnum greiðslum (e. annuity). Lokagjalddagi þeirra er 31. janúar 2038.

Stefnt er að útboði þann 25. janúar næstkomandi og uppgjöri viðskipta þann 31. janúar. Skila þarf tilboðum til verðbréfamiðlunar Íslandsbanka fyrir kl. 16.00 á fyrrnefndum degi, í síma 440 4499 eða með tölvupósti til vbm@islandsbanki.is.

Stefnt er að því að taka skuldabréfin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland á árinu 2018.

Íslandsbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og útboði skuldabréfanna auk töku þeirra til viðskipta.

 

Nánari upplýsingar veita:

Júlíus Jónsson, Forstjóri

julius@hsveitur.is s 422-5208/860-5208

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is