2011-02-09 13:50:51 CET

2011-02-09 13:51:52 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Þriggja ára áætlun Kópavogsbæjar


Áfram gætt ítrasta aðhalds í rekstri bæjarins.

Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar til næstu þriggja ára var lögð fram til
fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær. Hún byggir á markmiðum
fjárhagsáætlunar ársins 2011 þar sem m.a. er stefnt að því að greiða inn á
skuldir bæjarsjóðs um milljarð á ári næstu árin. Gert er ráð fyrir því að
seinni umræða fari fram í lok febrúar. 

Samkvæmt áætluninni er miðað við að rekstrarafgangur verði á samstæðureikningi
næstu árin, eða 144 milljónir árið 2012, 263 milljónir árið 2013 og 365
milljónir árið 2014. Þá er stefnt að því að skuldir sem hlutfall af tekjum
lækki og verði 179,5% árið 2014. 

Gert er ráð fyrir því að rekstur bæjarins verði í föstum skorðum á tímabilinu
og að áfram verði gætt ítrasta aðhalds. Áætlað er að framkvæma fyrir milljarð á
árinu 2012, 1,1 milljarð árið 2013 og 1,6 milljarða árið 2014. Inni í þessum
tölum eru fjárfestingar vegna félagslegra íbúða. 

Í framkvæmdum er megináhersla lögð á að ljúka samningsbundnum verkefnum,
endurbæta grunnskóla, byggja nýjan leikskóla, gera átak á leigumarkaði, taka í
notkun nýtt húsnæði héraðsskjalasafns og bókasafns í efri byggðum, undirbúa
stofnun nýs framhaldsskóla í bænum og endurbyggja gamla hressingarhælið og
Kópavogsbæinn. 

Nánari upplýsingar veitir: Arna Schram, upplýsingafulltrúi, í síma: 696 0663