2013-10-03 17:19:15 CEST

2013-10-03 17:20:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Kauptilboð Regins í fasteignina að Austurstræti 16 samþykkt


Eigandi fasteignarinnar Austurstræti 16 í Reykjavík  hefur samþykkt kauptilboð
dótturfélags Regins hf.  í alla eignina.  Fasteignin sem sem byggð var á árunum
1916 - 1918 og þekkt er sem gamla Reykjavíkurapótek er 2.773 m2 að stærð.
Eignin er ein af perlum Reykjavíkurborgar og stendur við Austurvöll. Hönnuð af
Guðjóni Samúelssyni, arkitekti og húsameistara ríkisisns. Húsið á sér merkilega
sögu í íslensku athafnalífi og er samofið uppbyggingu og sögu
Reykjavíkurborgar. Húsið er friðað að utan, einnig tekur friðun til stigagangs
að sunnan og innréttinga sem áður stóðu í apóteki. 

Reginn telur eignina bjóða upp á mikla möguleika vegna einstakrar staðsetningar
í miðbæ Reykjavíkur og nálægð við þjónustu, veitingastaði og menningalíf.
Reginn hefur hug á því að fara í samstarf við öfluga aðila varðandi nýtingu
hússins undir hótel-  og veitingarekstur.  Vandað verður til verka hvað varðar
hönnun og breytingu innanhúss. 

Áætlað er að kaupsamningur verði undirritaður í október 2013.

Kaup þessi eru innan ramma fjárfestingastefnu Regins sem felur meðal annars í
sér að auka hlut í húsnæði  tengdu ferðaiðnaðinum. Kaupverðið er trúnaðarmál. <strong style="font-size: 11pt;">Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 5128900 / 8996262