2014-09-01 11:09:03 CEST

2014-09-01 11:10:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Fyrirtækjafréttir

HB Grandi hefur samið um smíði þriggja ísfisktogara


Síðastliðinn föstudag, 29.8.2014, voru samningar um smíði þriggja nýrra
ísfisktogara undirritaðir á skrifstofu HB Granda. Samningarnir hljóða upp á
43.950.000 EUR eða um 6,8 milljarðar króna samtals. Áætlað er að fyrsta skipið
afhendist í maí 2016, það næsta síðla árs 2016 og það þriðja vorið 2017. 

Nýju skipin munu leysa þrjá togara sem nú eru í rekstri, Ásbjörn RE, Otto N.
Þorláksson RE og Sturlaug H. Böðvarsson AK, af hólmi. Með nýju skipunum eykst
hagkvæmni í rekstri, þau munu eyða minni olíu, aflameðferð og nýting verður
betri, rekstraröryggi eykst og viðhaldskostnaður mun lækka. 

Það er skipasmíðastöðin Celiktrans Deniz Insaat Ltd. Sti., Tuzla, Tyrklandi sem
mun annast smíði togaranna en fyrir er stöðin að smíða tvö uppsjávarskip fyrir
HB Granda. 

Hönnun skipanna er í höndum Nautic ehf., Lágmúla 5, Reykjavík.

Sjá einnig frétt á heimasíðu félagsins þann 24.6.2014 þar sem tilkynnt er að
stjórn félagsins hafi ákveðið að ganga til samninga um smíði þriggja
ísfisktogara.