2011-05-30 17:31:01 CEST

2011-05-30 17:32:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ísafjarðarbær - Ársreikningur

Leiðrétting - Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2010 frétt birt 2011-05-30 10:59:45


Leiðrétting: Í rekstrarreikningi ársins 2010, Aðrar tekjur, Samstæða alls:
1.099.799 þús.kr. breytast í 781.673 þús.kr. Í rekstrarreikningi ársins 2010,
Annar rekstrarkostnaður, Samstæða alls: 1.343.585 þús.kr. breytast í 1.025.470
þús.kr. Mismunurinn fellst í því að milliviðskipti milli A og B hluta voru ekki
tekin út í Samstæðu alls. 





Ársreikningur Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir árið 2010 var
borinn upp til síðari umræðu og samþykktur á fundi bæjarstjórnar fimmtudaginn
20. maí. Lagðar voru fram skýrslur kjörinna skoðunarmanna, þeirra Bryndísar G.
Friðgeirsdóttur og Steinþórs B. Kristjánssonar, og áritun óháðs endurskoðanda,
Guðmundar E. Kjartanssonar hjá Endurskoðun Vestfjarða ehf.