|
|||
2014-03-28 16:58:21 CET 2014-03-28 16:59:22 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirDregið úr fjárhagslegum tengslum Orkuveitunnar og GagnaveitunnarReykjavík, 2014-03-28 16:58 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Orkuveita Reykjavíkur hefur aukið hlutafé sitt í Gagnaveitu Reykjavíkur um þrjá og hálfan milljarð króna sem kemur í heild til lækkunar á láni Gagnaveitunnar hjá Orkuveitunni. Fyrirhugað er að endurfjármagna eftirstöðvar lánsins á almennum lánsfjármarkaði. Með þessum aðgerðum er dregið verulega úr fjárhagslegum tengslum Orkuveitunnar og Gagnaveitunnar auk þess sem lausafjárstaða Orkuveitunnar styrkist. Hlutafjáraukningin hefur fengið samþykki Póst- og fjarskiptastofnunar með ákvörðun sem birt var í dag. Að undangenginni ýtarlegri umræðu meðal eigenda Orkuveitunnar var ákveðið í október 2012 að selja allt að 49% hlut í Gagnaveitu Reykjavíkur ehf., sem Orkuveitan á nú að fullu. Þáttur í undirbúningi sölunnar er umrædd endurfjármögnun Gagnaveitunnar. Stjórn Orkuveitunnar veitti í júní 2013 heimild til að breyta allt að fjórum milljörðum króna af láni Gagnaveitunnar í hlutafé gegn því að eftirstöðvarnar lánsins verði greiddar. Með því er dregið úr fjárhagslegum tengslum Orkuveitunnar og Gagnaveitunnar áður en lengra er haldið með sölu á hlut í félaginu. Lausafjárstaða Orkuveitu Reykjavíkur styrkist sem uppgreiðslu lánsins nemur. Samþykkt stjórnar Orkuveitunnar var gerð með fyrirvara um samþykki Póst- og fjarskiptastofnunar. Það liggur nú fyrir. Hlutafjáraukningin var samþykkt á hluthafafundi Gagnaveitu Reykjavíkur í dag. |
|||
|