|
|||
2018-06-20 19:55:31 CEST 2018-06-20 19:55:31 CEST REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarVÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í maí 2018Samsett hlutfall í maí var 112,8% en það var 89,8% í maí í fyrra. Samsett hlutfall það sem af er ári er 104,6% og síðustu 12 mánuði er það tæplega 99%. Nafnhækkun fjárfestingaeigna var 0,0% í maí en nafnhækkun frá áramótum er 3,4%. VÍS greiddi viðskiptavinum sínum 1,3 milljarða króna í tjónabætur í maí og hefur greitt viðskiptavinum 6,4 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári. *Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105. |
|||
|