|
|||
![]() |
|||
2015-10-20 19:01:57 CEST 2015-10-20 19:02:58 CEST REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsSjóvá: Leiðrétting við fréttir birtar 2015-09-07 kl. 11:24 og 2015-09-21 kl. 11:00Leiðrétting við tilkynningar um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Komið hefur í ljós að í ofangreindum tveimur reglubundnu tilkynningum um kaup Sjóvá á eigin bréfum í viku 36 og viku 38 vantaði tvenn viðskipti. Um er ræða eftirfarandi viðskipti sem annars vegar áttu sér stað þann 2.9.2015 (vika 36) og hins vegar þann 18.9.2015 (vika 38): Dagsetning Tímasetning viðskipta Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð --------------------------------------------------------------------------- 2.9.2015 13:59:40 19.066 12,07 230.127 --------------------------------------------------------------------------- 18.9.2015 14:00:30 247.858 11,95 2.961.903 --------------------------------------------------------------------------- Þetta leiddi til þess að uppgefin hlutföll samtals keyptra hluta sem og heildarkaupverð voru ekki rétt í reglubundnum tilkynningum um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem birtar voru frá og með 7.9.2015. Um er ræða reglubundnar tilkynningar um kaup frá 2015-09-07 11:24:14, 2015-09-14 11:00:00, 2015-09-21 11:00:00, 2015-09-28 11:12:21, 2015-10-05 11:51:31 og 2015-10-19 11:00:00. Samkvæmt síðastnefndri tilkynningu frá 2015-10-19 11:00:00 kom fram að Sjóvá hefði keypt samtals 16.899.045 hluti í félaginu sem samsvaraði 42,25% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta var sagt nema samtals kr. 198.498.488 og að Sjóvá ætti samtals 1,06% af heildarhlutafé félagsins. Með því að ofangreind tvenn viðskipti komu ekki fram í fyrri tilkynningum, en eftir að þeim hefur nú verið bætt við þá breytast hlutföll og samtölur í síðastnefndri tilkynnningu með eftirfarandi hætti: Sjóvá hefur nú keypt samtals 17.165.969 hluti í félaginu sem samsvarar til 42,91% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 201.690.517. Sjóvá á nú samtals 1,08% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994. |
|||
|