2016-02-25 14:20:36 CET

2016-02-25 14:20:36 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Leiðrétting á heildastærð LSS55 að afloknu útboði. Heildarstærð flokksins er nú
ISK 947.000.000. 

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 og
LSS151155 þann 24. febrúar 2016. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 26.
febrúar 2016. 

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu
skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10%
af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til
kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á
samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það
magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 680.000.000 á bilinu 3,09% -
3,21%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 380.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 3,14%. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í
LSS150434 fyrir ISK 18.000.000. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434
nemur því að nafnvirði ISK 398.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,14%. Útistandandi
fyrir voru ISK 20.141.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 20.539.352.565. 

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 380.000.000 á bilinu 2,99% -
3,14%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 280.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 3,09%. Að þessu sinni var orðið við beiðni um kaup á ISK
28.000.000 til viðbótar í LSS151155. Heildarmagn seldra bréfa í flokki
LSS151155 nemur því að nafnvirði ISK 308.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,09%.
Útistandandi fyrir voru ISK 639.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK
947.000.000. 

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is