2018-01-22 15:02:19 CET

2018-01-22 15:03:20 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breyting á skipuriti Íbúðalánasjóðs.


Á fundi sínum þann 24. nóvember síðastliðinn ákvað stjórn Íbúðalánasjóðs að gera breytingu á skipuriti sjóðsins sem tekur gildi þann 1. febrúar 2018. Breytingin felst í því að stofnað verður nýtt svið, svið húsnæðisbóta, sem mun koma til með að sinna húsnæðisbótum, þjónustuveri og umsýslu skuldabréfasafns. Starfsemi sviðsins verður á Sauðárkróki. María Dungal mun taka tímabundið við starfi framkvæmdastjóra sviðsins. Undirbúningur vegna þessara breytinga er þegar hafinn.