2014-04-30 15:12:19 CEST

2014-04-30 15:13:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir II ehf. - Niðurstöður hluthafafunda

Niðurstöður aðalfundar Reita II


Aðalfundur Reita II ehf. var haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2014 á skrifstofu
félagsins í Reykjavík. 

Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:

  1. Ársreikningur vegna ársins 2013 var samþykktur.
  2. Samþykkt var tillaga um að greiða ekki út arð vegna ársins 2013.
  3. Samþykkt var tillaga um að starfskjarastefna félagsins verði sú sama og hjá
     móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf.
  4. Aðalfundur kaus KPMG ehf. sem endurskoðunarfélag Reita II ehf. til næsta
     árs.
  5. Samþykkt var tillaga um að stjórnarmenn fái áfram enga þóknun fyrir störf
     sín.