2015-11-23 17:18:00 CET

2015-11-23 17:18:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 47. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 750.000 eigin hluti fyrir
62.175.000 kr. eins og hér segir: 

Dagsetning   Tími      Keyptir  Viðskipta-ve    Kaupverð      Eigin hlutir eftir
                        hlutir            rð                           viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
17.11.2015  10:11      250.000         83,10  20.775.000               7.383.326
--------------------------------------------------------------------------------
17.11.2015  10:32      250.000         83,00  20.750.000               7.633.326
--------------------------------------------------------------------------------
18.11.2015  14:45      250.000         82,60  20.650.000               7.883.326
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                750.000                62.175.000                        
--------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 18. júní 2015. 

Reitir hafa nú keypt samtals 7.883.326 hluti í félaginu sem samsvarar 23,19% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 598.625.624 krónum. Reitir eiga nú samtals
1,04% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en
þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og
viðauka við reglugerð nr. 630/2005.