2016-02-24 17:09:16 CET

2016-02-24 17:09:16 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
REG3A fjármögnun - Fyrirtækjafréttir

REG3A fjármögnun: Breyting á undirliggjandi veðandlagi


Samkvæmt útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins REG3A 14 1 er útgefanda flokksins,
REG3A fagfjárfestasjóði, kt. 431213-9900, heimilt að leyfa Reginn atvinnuhúsnæði
ehf., kt. 521009-1010, að skipta út eignum í undirliggjandi veðandlagi
lánssamnings milli útgefanda og Regins atvinnuhúshæðis. Undir liðnum sérstök
skilyrði d) í útgáfulýsingu REG3A 14 1 kemur eftirfarandi fram:

"Í  lánssamningi útgefanda  við Regin  atvinnuhúsnæði ehf.  kemur fram  að Regin
atvinnuhúsnæði  ehf. geti  selt eignir  sem standa  til tryggingar  með samþykki
útgefanda  svo lengi sem önnur  veð koma í staðinn,  skv. skilmálum. Fari svo að
Reginn  atvinnuhúsnæði ehf. óski  eftir því að  selja fasteignir úr veðandlaginu
skal  útgefandi  ekki  samþykkja  slíka  sölu  nema  með fyrirfram samþykki 75%
skuldabréfaeigenda ef eitt eða fleiri af eftirfarandi skilyrðum eru til staðar:

   I. Reginn atvinnuhúsnæði ehf. hefur selt a.m.k. tvær fasteignir úr
      veðandlaginu síðastliðna 12 mánuði.
  II. Reginn atvinnuhúsnæði ehf. hefur selt samanlagt 20% eða meira af virði
      veðandlagsins eða fyrir séð að umrædd sala leiði til þess. Virði
      veðandlagsins er skilgreint í lánssamningi.
 III. Um er að ræða sölu innan samstæðu Regins hf. "

Reginn  atvinnuhúsnæði hefur óskað eftir því að selja fasteignirnar við Brúarvog
1-3, fnr.   230-9730 og   Rofabæ   39, fnr.   204-5264, báðar  í  Reykjavík,  úr
undirliggjandi  veðandlagi  en  samanlagt  uppreiknað  matsvirði  eignanna er um
2.177 m.kr.  (14% af veðandlagi).  Reginn atvinnuhúsnæði ehf.  hefur óskað eftir
því að í staðinn komi eftirfarandi eignir að veði:

Eign                  Staður      Fastanúmer     Virði     Matsaðili
-------------------------------------------------------------------------
Hlíðarsmári 1         Kópavogur     225-5456   942.000.000 PWC

Íshella 8             Hafnarfirði   225-4142   876.000.000 PWC

Dvergshöfði 2 8 hæð   Reykjavík     229-9867   100.500.000 Kaupverð 2015*

Tryggvagata 11        Reykjavík     225-0011   105.000.000 Kaupverð 2015*

Austurvegur 10        Selfossi      224-0572    66.000.000 PWC

Bæjarhraun 22 2.-3.h. Hafnarfirði   225-0150   105.000.000 PWC

          "                         225-0151

          "                         225-0152

          "                         225-0153
-------------------------------------------------------------------------
Samtals                                      2.194.500.000

*staðfest af fasteignasala

Þar  sem liður I hér að  ofan á við, þ.e. fleiri  en tveim eignum skipt út á 12
mánaða  tímabili, skal REG3A fjármögnun ekki samþykkja söluna nema með fyrirfram
samþykki  a.m.k. 75% skuldabréfaeigenda. Slíks samþykkis hefur nú verið aflað og
hefur REG3A fjármögnun samþykkt ofangreinda breytingu á veðandlagi í samræmi við
skilmála lánssamnings og útgefinna skuldabréfa REG3A 14 1 og veði verið aflétt.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA
sjóðir hf. í síma 510-1090.




[HUG#1989057]