|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-06-06 20:02:08 CEST 2017-06-06 20:02:08 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFlutningatölur maí 2017Í maí flutti Icelandair 332 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 4% fleiri en í maí á síðasta ári. Framboðsaukning í sætiskílómetrum nam 3%. Sætanýting var 81,1% og jókst um 2,9 prósentustig á milli ára. Farþegar Air Iceland Connect voru rúmlega 29 þúsund í maí sem er aukning um 12% á milli ára. Framboð félagsins í maí var aukið um 3% samanborið við fyrra ár. Sætanýting nam 67,9% og samanborið við 67,2% í maí á síðasta ári. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 17% á milli ára. Fraktflutningar í áætlunarflugi jukust um 7% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 11% miðað við maí 2016. Herbergjanýting var 77,0% en hún nam 79,4% í maí í fyrra.
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|