|
|||
![]() |
|||
2016-09-05 10:56:21 CEST 2016-09-05 10:56:21 CEST REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 35 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.845.165 eigin hluti að kaupverði 21.738.192 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) ------------------------------------------------------------------------ ------------------------------------------------------------------------ 29.08.2016 11:00 9.533 11,55 110.106 30.08.2016 09:33 38.132 11,65 444.238 ------------------------------------------------------------------------ 30.08.2016 10:31 567.390 11,65 6.610.094 ------------------------------------------------------------------------ 31.08.2016 10:04 605.522 11,75 7.114.884 ------------------------------------------------------------------------ 01.09.2016 15:04 19.066 11,69 222.882 ------------------------------------------------------------------------ 02.09.2016 09:49 605.522 11,95 7.235.988 ------------------------------------------------------------------------ Samtals 1.845.165 21.738.192 ------------------------------------------------------------------------ Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. Sjóvá átti 19.216.980 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 21.062.145 eigin hluti eða sem nemur 1,35% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 11.146.372 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,71% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 128.810.793 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ Nánari upplýsingar veitir: Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000 |
|||
|