|
|||
![]() |
|||
2016-09-05 11:29:30 CEST 2016-09-05 11:29:30 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 35 keyptu Fjarskipti hf. 180.000 eigin hluti að kaupverði 8.280.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) -------------------------------------------------------------------- 30.08.2016 15:29 180.000 46,00 8.280.000 -------------------------------------------------------------------- Samtals 180.000 8.280.000 Er hér um að ræða kaup Fjarskipta á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2016. Fjarskipti áttu 6.711.071 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 6.891.071 eigin hluti eða sem nemur 2,53% af útgefnum hlutum í félaginu. Fjarskipti hafa keypt samtals 4.722.371 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,73% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 208.184.441 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 6.734.000 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [] |
|||
|