2011-02-25 19:37:31 CET

2011-02-25 19:38:32 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Ársreikningur 2010



Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2010, var staðfestur af stjórn
stofnunarinnar 25. febrúar 2011. 

Tap ársins nam 2.628 mkr. Samkvæmt ársreikningnum er eigið fé stofnunarinnar
neikvætt um 498 mkr. Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er -2,4%
en skal að lágmarki vera 8% af eiginfjárgrunni. 

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar fyrir árið 2010:

  -- Tap stofnunarinnar á árinu nam 2.628 mkr.
  -- Hreinar vaxtatekjur voru jákvæðar um 534 mkr. samanborið við 685 mkr.
     hreinar vaxtatekjur á árinu 2009.
  -- Rekstrartekjur námu 229 mkr.
  -- Almenn rekstrargjöld, styrkir og framlög til atvinnuþróunarfélaga námu 496
     mkr.
  -- Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreyting hlutafjár nam 2.894
     mkr.
  -- Handbært fé til rekstrar var 1.621 mkr.
  -- Endanlega töpuð útlán námu 2.641 mkr.
  -- Eignir námu 16.994 mkr. og hafa lækkað um 6.720 mkr. frá árinu 2009. Þar af
     voru útlán 14.064 mkr.
  -- Skuldir námu 17.492 mkr. og hafa lækkað um 5.092 mkr. frá árinu 2009.
  -- Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 221 mkr.
  -- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er -2,4% en skal að
     lágmarki vera 8% af eiginfjárgrunni.

Um ársreikninginn

Vegna erfiðs efnahagsástands hefur stofnunin þurft að leggja aukna fjármuni inn
á afskriftarreikning útlána vegna mögulegrar taphættu.  Á árinu 2010 var þessi
fjárhæð 2.894 mkr. í samanburði við 3.721 mkr. árið 2009. Hlutfall
afskriftarreiknings af heildarútlánum 25,6%. 

Skýrist tap stofnunarinnar á árinu af þessum varúðarfærslum.

Hreinar vaxtatekjur stofnunarinnar námu 534 mkr. og hafa dregist saman frá
árinu 2009. 

Horfur

Í árslok var eiginfjárhlutfall -2,4% eins og að ofan greinir. Ákvæði laga um
fjármálafyrirtæki segja til um að eigið fé skuli að lágmarki vera 8% af
áhættugrunni og uppfyllti stofnunin því ekki ákvæði laga þar um í lok árs 2010.
Ljóst er því að ríkissjóður þarf að leggja stofnuninni til fjármuni eigi
lánastarfsemi að halda áfram. 

Alþingi samþykkti í fjárlögum 2011, heimild til að efla eigið fé
Byggðastofnunar um allt að 1.000 mkr. að fenginni úttekt iðnaðarráðuneytisins á
framtíðarfyrirkomulagi lánastarfsemi stofnunarinnar. 

Iðnaðarráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur um
framtíðarfyrirkomulag á lánastarfsemi stofnunarinnar. Nefndinni er ætlað að
skila tillögum sínum eigi síðar en 1. maí nk. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í
síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is