|
|||
2014-07-21 11:51:11 CEST 2014-07-21 11:52:12 CEST REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.Í 29. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 980.611 eigin hluti fyrir 23,9 m.kr. eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskiptave Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir g hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 15.7.2014 13:49 500.000 24,35 12.175.00 8.519.389 0 -------------------------------------------------------------------------------- 15.7.2014 14:56 480.611 24,35 11.702.87 9.000.000 8 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 980.611 23.877.87 8 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014. TM hefur nú keypt samtals 9.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 42,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 236,4 milljónum króna. TM á nú samtals 1,18% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson, forstjóri s: 515-2609 sigurdur@tm.is |
|||
|