2013-11-12 17:29:57 CET

2013-11-12 17:30:58 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breyting á stjórn Íbúðalánasjóðs


Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað Hauk F. Leósson sem varaformann
stjórnar Íbúðalánasjóðs. 

Haukur er fæddur 30. október 1937. Hann vann hjá N. Mancher og Co, Endurskoðun,
sem síðar varð PWC, frá 1957 til 1968. Hjá Landsvirkjun vann hann við
fjárhagsáætlanir og sem aðalbókari frá 1969 til 1984 og frá 1985 til 2005 sem
skrifstofustjóri Endurskoðunar hf, sem síðar varð KPMG ehf., og vann þar við
gerð ársreikninga og skattframtala. Haukur vann sem framkvæmdastjóri Húsmúla,
fasteignafélags frá 2006 til 2007. 

Haukur sat í Innkauparáði Reykjavíkurborgar frá 1998 til 2006. Í stjórn Frjálsa
lífeyrissjóðsins sat hann í stjórn frá 2006 til 2010. Í stjórn AP
almannatengsla ehf sat hann í stjórn frá 2006 til 2009 og í stjórn
Orkuveitunnar sat hann í stjórn frá 2006 til 2007.