2013-11-12 18:25:34 CET

2013-11-12 18:26:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Company Announcement (is)

HB Grandi hf. stefnir á Aðalmarkað


HB Grandi hf. og stærstu eigendur félagsins, Vogun hf., Arion banki hf. og
Fiskveiðahlutafélagið Venus hf., hafa náð samkomulagi um að hefja undirbúning
að því að hlutir félagsins verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq OMX
Iceland hf. Viðskipti með hluti félagsins eru nú á First North markaðstorgi
Nasdaq OMX Iceland hf. og hyggjast aðilar leitast eftir afskráningu af þeim
vettvangi sem taki gildi frá og með ársbyrjun 2014. Undirbúningur að skráningu
á Aðalmarkað Nasdaq OMX Iceland hf. mun hefjast innan skamms og mun
fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. annast undirbúninginn. 

Áður en til skráningar á Aðalmarkað kemur hyggjast framangreindir hluthafar
bjóða til sölu allt að 32% eignarhlut í HB Granda hf. Markmið sölunnar verður
að stuðla að dreifðara eignarhaldi á félaginu og auka seljanleika hlutabréfa
þess en viðskipti með hluti félagsins á First North hafa verið takmörkuð. Vonir
standa til þess að viðskipti með hluti félagsins á Aðalmarkaði hefjist á
vormánuðum næsta árs. 



Kristján Loftsson, stjórnarformaður HB Granda hf.

„HB Grandi er eitt af öflugustu sjávarútvegsfélögum landsins með um 800
starfsmenn til sjós og lands. Afkoma félagsins hefur verið góð undanfarin
misseri og lögð hefur verið áhersla á að styrkja landvinnslu félagsins. Nýverið
var fjárfest í tveimur uppsjávarskipum sem munu ná betri meðferð afla en eldri
skip sem þau leysa af hólmi. Það er ánægjuefni að sem flestum gefist nú frekari
kostur á að fjárfesta í HB Granda og þar með íslenskum sjávarútvegi.“ 



Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka hf.

„Við fögnum því að hafa náð saman um skráningu HB Granda á Aðalmarkað. Við
teljum mikilvægt að koma þessu öfluga sjávarútvegsfyrirtæki á Aðalmarkað, sem
við teljum gott fyrir sjávarútveginn og áframhaldandi uppbyggingu
hlutabréfamarkaðar hér á landi og væntum þess að almenningur og fjárfestar sýni
þessu mikinn áhuga.“