2013-11-12 18:42:44 CET

2013-11-12 18:43:44 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Minutes of extraordinary general meeting (is)

Niðurstöður hluthafafundar 12. nóvember 2013


   1.  Staðfesting á samruna við Laugafisk ehf.

Hluthafafundur í HB Granda hf. haldinn 12. nóvember 2013 staðfestir með vísan
til 124. gr. hlutafélagalaga  nr. 2/1995  samruna Laugafisks ehf. við félagið
samkvæmt samrunaáætlun félaganna, dags.  22. ágúst 2013, sem auglýst var í
Lögbirtingablaðinu 9. október 2013. 

Samruninn miðast við 1. júlí 2013 og tekur HB Grandi hf. við öllum rekstri,
eignum og skuldum, réttindum og skyldum félagsins í samræmi við samrunaáætlun. 
 Til að mæta samruna félaganna verður hlutafé félagsins aukið um kr. 15.625.000
og er skiptihlutfall hlutabréfanna 16 þannig að hver hluthafi í Laugafiski ehf.
fær 1 hlut í HB Granda hf fyrir 16 hluti í Laugafiski ehf. 

  1. Hlutafárhækkun vegna kaupa á öllum hlutum í Vigni G. Jónssyni hf.

Hluthafafundur í HB Granda hf. haldinn 12. nóvember 2013 samþykkir að hækka
hlutafé félagsins um kr. 100.000.000 á síðasta sölugengi First North, 16,2.
Verði hinu nýja hlutafé öllu varið til að kaupa alla hluti í Vigni G. Jónssyni
hf. 

Hluthafar Vignis G. Jónssonar hf. geta einir skrifað sig fyrir hinum nýju
hlutum. Þannig fylgir forgangsréttur hluthafa HB Granda hf. ekki þessari
hækkun. 

Áskriftarréttur að hækkuninni skal vera 4 vikur frá samþykkt tillögunnar og
skulu hinir nýju hlutir allir greiddir með hlutum í Vigni G. Jónssyni hf. 

Um hina nýju hluti gilda samþykktir félagsins og veita full réttindi í félaginu
 frá skráningardegi. 

Áætlaður kostnaður vegna hlutafjárhækkunarinnar er kr. 150.000 auk
stimpilgjalda 0,5% á útgefið hlutafé.