|
|||
2014-04-29 15:00:49 CEST 2014-04-29 15:01:54 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurÖssur - Fyrsti ársfjórðungur 2014Fyrsti ársfjórðungur 2014 * Hagnaður jókst um 96% milli ára. Hagnaðurinn nam 11 milljónum Bandaríkjadala og 9% af sölu, samanborið við 6 milljónir dala og 6% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2013. * Sala nam 121 milljón Bandaríkjadala, samanborið við 97 milljónir dala á sama tímabili 2013. Söluvöxtur var 24%, þar af 6% innri vöxtur, hvortveggja mælt í staðbundinni mynt. * Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 28%, þar af 2% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt. * Sala á stoðtækjum jókst um 19%, þar af 12% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt. * Framlegð nam 76 milljónum Bandaríkjadala og 63% af sölu, samanborið við 60 milljónir Bandaríkjadala og 62% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2013. * EBITDA framlegð nam 20 milljónum Bandaríkjadala og 17% af sölu, samanborið við 14 milljónir dala og 14% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2013. * Vegna árstíðabundinna sveiflna er handbært fé frá rekstri minnst á fyrsta ársfjórðungi. Handbært fé frá rekstri nam 12 milljónum Bandaríkjadala og 10% af sölu, samanborið við 9 milljónir dala og 9% af sölu á sama tímabili 2013. * 2. apríl 2014 var lánasamning félagsins breytt og hann framlengdur um þrjú ár, eða fram til ársins 2019. Meðalvextir eru 105 bps + LIBOR/EURIBOR sem breytist í takt við skuldsetningu félagsins. Samstarfsbankar Össurar eru ING, Nordea og SEB. Áætlun 2014 Áætlun stjórnenda fyrir árið: * Söluvöxtur í staðbundinni mynt á bilinu 14-16%. * Innri söluvöxtur á bilinu 2-4%, mælt í staðbundinni mynt. * EBITDA sem hlutfall af veltu, á bilinu 17-19% af sölu. * Fjárfestingar (CAPEX), á bilinu 2,5-3,5% af sölu. * Virkt skatthlutfall í um 26%. Jón Sigurðsson, forstjóri:"Niðurstöður fyrsta ársfjórðungs eru í takt við okkar væntingar. Við sjáum enn einn ársfjórðunginn þar sem arðsemin er mjög góð og rekstrarhagnaður tvöfaldast á milli ára. Aðhaldsaðgerðir sem við fórum í á síðasta ári og endurhönnun á ferlum hafa jákvæð áhrif, en einnig er ánægjulegt að sjá að markaðsskilyrði á stoðtækjamarkaðnum í Bandaríkjunum er að þróast í rétta átt. Sölu vöxtur í EMEA heldur áfram að vera stöðugur. Í byrjun april framlengdum við lánasamning félagsins um þrjú ár, eða fram til ársins 2019 og endurspegla lánakjörin sterka fjárhagslega stöðu Össurar og góðar framtíðarhorfur." Össur hf. uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung - morgunverðarfundur með markaðsaðilum föstudaginn 2. maí kl. 8:30 Miðvikudaginn 30. apríl kl. 10:00 verður símafundur með fjárfestum og á föstudaginn 2. maí býður félagið markaðsaðilum á Íslandi á morgunverðarfund þar sem Sveinn Sölvason, fjármálastjóri mun fara yfir niðurstöður fjórðungsins. Símafundur 30. apríl kl.10:00 Innhringinúmer fyrir símafund: 800-8660 Morgunverðarfundur 2. maí kl. 8:30 Staður: Össur hf, Grjótháls 5, 4. hæð [HUG#1781032] |
|||
|