2022-12-05 10:27:13 CET

2022-12-05 10:27:13 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 32 1 og RVK 53 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið, í samræmi við útgáfuáætlun 2022, að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVK 53 1 miðvikudaginn 7. desember. Heimild til lántöku á árinu 2022 er 25.000 m.kr.

RVK 32 1 ber fasta 2,5% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2032. Heildarstærð RVK 32 1 fyrir þetta útboð nemur alls 25.863 m.kr. að nafnvirði.

RVK 53 1 ber fasta 4,4% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 10. desember 2053. Heildarstærð RVK 53 1 fyrir þetta útboð nemur alls 22.350 m.kr. að nafnvirði.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 13. desember.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 á útboðsdegi.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272