2013-08-30 18:01:00 CEST

2013-08-30 18:01:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 23. júlí sl. varðandi
gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 3. september nk.  kom fram
í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í
tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 30.
ágúst. 



Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra
skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er
111,403610 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum
(e. dirty price) miðað við uppgjörsdag  6. september 2013 (ávöxtunarkrafa
2,75%).1 

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).






1 Hreint verð (e. clean price) er 103,8.