|
|||
2012-04-02 11:29:51 CEST 2012-04-02 11:30:51 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirIcelandair gengur frá samningum um tvær Boeing 757-200 vélarVegna stækkunar á leiðarkerfi Icelandair mun félagið vera með 16 vélar í rekstri næsta sumar samanborið við 14 vélar sumarið 2011. Gengið hefur verið frá samningum um tvær Boeing 757-200 vélar sem munu bætast við flota Icelandair á næstu mánuðum. Annars vegar er um að ræða kaup á vél og hins vegar leigu á vél til 20 mánaða. Kaupin eru fjármögnuð úr sjóðum félagsins. Kaupverðið er trúnaðarmál. Báðar vélarnar eru á leið í hefðbundið innleiðingarferli Icelandair til að uppfylla staðla félagsins fyrir notkun. Gert er ráð fyrir að báðar vélarnar verði tilbúnar til notkunar í leiðarkerfi félagsins í maí næst komandi. Nánari upplýsingar veitir: Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 |
|||
|