|
|||
2008-07-31 10:30:00 CEST 2008-07-31 10:30:43 CEST REGULATED INFORMATION Glitnir banki hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Afkomukynning Glitnis banka vegna 2. ársfjórðungs 2008 kl. 9:30 á föstudag - athugið breyttan fundartímaLárus Welding, forstjóri Glitnis, kynnir uppgjörið fyrir hluthöfum og markaðsaðilum kl. 9:30, föstudaginn 1. ágúst á Nordica Hilton hótelinu (salir H og I) í stað 9:00 eins og áður hefur verið auglýst. Fundurinn fer fram á ensku. Fylgjast má með fundinum beint á Netinu á heimasíðu Glitnis, www.glitnir.is. Jafnframt verður hægt að senda spurningar á fundinn. Kynning í London Lárus Welding forstjóri og Rósant Már Torfason fjármálastjóri kynna uppgjörið fyrir markaðsaðilum þriðjudaginn 5. ágúst kl. 16 að staðartíma. Fundurinn fer fram í Great Eastern salnum á Andaz hótelinu, 40 Liverpool Street, London EC2M 7QN. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir að skrá sig með tölvupósti á IR@glitnir.is Bókun fjölmiðlaviðtala Til að bóka fjölmiðlaviðtöl, vinsamlegast hafið samband við Má Másson, forstöðumann kynningarmála á Íslandi, með því að senda tölvupóst til mar.masson@glitnir.is eða hringja í síma 440 4990. Frekari upplýsingar veitir: Sigrún Hjartardóttir Forstöðumaður fjárfestatengsla sími 440 4748 eða í gegnum netfang sigrun.hjartardottir@glitnir.is |
|||
|