2024-03-27 17:02:00 CET

2024-03-27 17:02:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundar

Eik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2024. Upplýsingar vegna skráningar.


Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 16:00, fimmtudaginn 11. apríl 2024, í Sjálandi, Ránargrund 4, 210 Garðabæ, auk þess sem hluthöfum gefst kostur á að taka þátt í fundinum rafrænt.
Ekki hafa verið gerðar breytingar á dagskrá eða tillögum sem birtar voru með tilkynningu félagsins 20. mars 2024. Fundargögn eru á heimasíðu félagsins á slóðinni: http://eik.is/hluthafar.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum eru minntir á að skrá sig tímanlega á heimasíðunni https://www.lumiconnect.com/meeting/eik2024 og ekki seinna en kl. 16:00 miðvikudaginn 10. apríl 2024. Opnað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 3. apríl 2024.
Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á stjornun@eik.is. Hluthöfum sem hafa hug á að taka til máls á fundinum er boðið að upplýsa um það með tölvupósti á sama netfang.


Viðhengi