|
|||
![]() |
|||
2015-09-21 10:00:00 CEST 2015-09-21 10:00:31 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 38 keyptu Fjarskipti hf. 447.567 eigin hluti að kaupverði 20.694.244 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) --------------------------------------------------------------------- 14.9.2015 15:05 12.698 46,55 591.092 --------------------------------------------------------------------- 14.9.2015 15:05 9.523 46,55 443.296 --------------------------------------------------------------------- 15.9.2015 14:38 25.346 46,55 1.179.856 --------------------------------------------------------------------- 16.9.2015 10:22 300.000 46,20 13.860.000 --------------------------------------------------------------------- 17.9.2015 09:50 100.000 46,20 4.620.000 --------------------------------------------------------------------- Samtals 447.567 20.694.244 Fjarskipti áttu 4.213.070 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 4.660.637 eigin hluti eða sem nemur 1,39% af útgefnum hlutum í félaginu. Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Fjarskipta sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júlí 2015. Fjarskipti hafa keypt samtals 4.321.637 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,29% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 183.466.984 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 10.300.000 hlutum eða sem nemur 3,06% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 400.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 31. desember 2015 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitir "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#1953274] |
|||
|