2013-03-27 16:31:00 CET

2013-03-27 16:31:04 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Stefna í lánamálum ríkissjóðs fyrir árin 2013-2016


Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir stefnu í lánamálum ríkissjóðs 2013 -
2016. Stefnan endurspeglar áform stjórnvalda um framkvæmd lánsfjármögnunar á
tímabilinu. 

Í stefnunni er lýst núverandi samsetningu lána ríkissjóðs, helstu áhættuþáttum
við lánastýringu og áhættuskuldbindingum ríkissjóðs. Þá er lýst skipulagi við
framkvæmd lánamála. Fjármála- og efnahagsráðuneytið ber ábyrgð á lánaumsýslu
ríkisins, mótar stefnu í lánamálum og tekur ákvarðanir um útgáfu verðbréfa.
Lánamál ríkisins, sérstök deild innan Seðlabankans, sér um framkvæmd stefnunnar
í samræmi við samning milli bankans og fjármála- og efnahagsráðuneytisins. 

Stefna í lánamálum er nú birt þriðja sinni. Helstu markmið við lánastýringu
ríkisins eru: 

  -- Að tryggja að lánsfjárþörf og fjárhagslegum skuldbindingum ríkissjóðs sé
     mætt með lágmarkskostnaði til lengri tíma litið, að teknu tilliti til
     varfærinnar áhættustefnu.
  -- Að tryggja að endurgreiðsluferill lána sé í samræmi við greiðslugetu
     ríkisins til lengri tíma litið.
  -- Að viðhalda og stuðla að frekari uppbyggingu á skilvirkum frum- og
     eftirmarkaði með innlend ríkisverðbréf.
  -- Að höfða til breiðs hóps fjárfesta í ríkisverðbréfum og nýta fjölbreytta
     fjármögnunarmöguleika.
  -- Stefnan verður uppfærð og endurskoðuð árlega.

Uppbygging markflokka ríkisbréfa miðar að því að hver flokkur verði nægilega
stór til að tryggja virka verðmyndun á eftirmarkaði. Árlega verða gefnir út 2,
5 og 10 ára markflokkar ríkisbréfa. Til að draga úr endurfjármögnunaráhættu er
stefnt að því að endurgreiðsluferill ríkisverðbréfa verði sem jafnastur. Þá er
stefnt að því að meðallánstími verði 4 ár að lágmarki. 

Lán ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðlum eru einkum tekin til að styrkja
gjaldeyrisforða Seðlabankans. Stefnt er að reglulegri útgáfu markaðsskuldabréfa
ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum og höfða skal til fjölbreytts hóps fjárfesta. 

  -- Stefna í lánamálum ríkisins 2013 - 2016

Nánari upplýsingar veita;
Esther Finnbogadóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytisins,
esther.finnbogadottir@fjr.is og

Elva Björk Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins,
elva.sverrisdottir@fjr.is