|
|||
2017-05-02 18:34:08 CEST 2017-05-02 18:34:08 CEST REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsREITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 17. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 23.460 eigin hluti fyrir 2.401.540 kr. eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskipta-ve Kaupverð Eigin hlutir eftir g hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 24.4.2017 14:19 3.110 101,5 315.665 708.958 -------------------------------------------------------------------------------- 28.4.2017 13:54 15.000 102,5 1.537.500 723.958 -------------------------------------------------------------------------------- 28.4.2017 15:00 5.350 102,5 548.375 729.308 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 23.460 2.401.540 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017. Reitir hafa nú keypt samtals 729.308 hluti í félaginu sem samsvarar 4,86% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 71.761.340 krónum sem samsvarar 4,78% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 729.308 hluti, eða 0,10% af heildarhlutafé félagsins eins og það verður eftir að lækkun hlutafjár sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 14. mars sl. hefur formlega verið skráð. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
|||
|