2012-06-20 18:10:21 CEST

2012-06-20 18:11:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útgáfa á RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboð


Í dag 20. júní fór fram gjaldeyrisútboð hjá Seðlabanka Íslands þar sem bankinn
bauðst til þess að kaupa evrur gegn afhendingu á ríkisbréfum í verðtryggða
flokknum RIKS 33 0321. Aðgerðin sem er liður í losun hafta á
fjármagnsviðskiptum mun draga úr árlegri endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs.
Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir kr. 1.541.523.995 að nafnverði. 

Samþykkt gengi evru gangvart krónur var 245 í útboðinu.

Þann 14. júní var tilkynnt um fast verð bréfanna sem er 104,498860 kr. með
áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 22. júní
2012 (krafa 2,90%).[1]








[1] Hreint verð (e. clean price) 101,50