2011-05-06 13:46:25 CEST

2011-05-06 13:47:25 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska Enska
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 OG RIKB 16 1013


Útboð á óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 12 0824 og RIKB 16 1013 fór fram
hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll
samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.600 m.kr. að nafnverði. 3
tilboðum var tekið fyrir 700 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,25 (3,23%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 16 1013:
Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 835 m.kr. að nafnverði. 5
tilboðum var tekið fyrir 785 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,05 (5,54%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 10.
maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 11. maí 2011.

NidurstodurRIKB.pdf