|
|||
2011-08-23 18:42:36 CEST 2011-08-23 18:43:36 CEST REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga - ÁrsreikningurLánasjóður sveitarfélaga ohf - 6 mánaða uppgjör 2011Afkoma fyrstu 6 mánaða 2011 Hagnaður tímabilsins nam 519 milljónum króna miðað við 941 milljónir króna á sama tíma árið 2010 og var í samræmi við væntingar sjóðsins. Lækkun hagnaðar milli ára skýrist aðallega af gengisþróun evrunnar sem var sérstaklega hagstæð sjóðnum á árinu 2010. Meginhlutverk sjóðsins er að tryggja sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Útborguð langtímalán á tímabilinu námu 3.495 m.kr. samanborið við 2.014 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt Basel II um eigið fé fjármálafyrirtækja er 51% og lækkar úr 78% frá áramótum. Skýring lækkunarinnar felst í nýsettum reglum FME nr. 378/2011 um breytingu á reglum nr. 215/2007, um eiginfjárkröfur og áhættugrunn fjármálafyrirtækja, sem tóku gildi 13. apríl 2011. Ef að núverandi aðferð hefði verið beitt um áramót hefði reiknað eiginfjárhlutfall (CAD) sjóðsins verið 48% í árslok 2010. Framtíðarhorfur Aðstæður á lánsfjármörkuðum munu hafa úrslitaáhrif á möguleika sjóðsins til að koma til móts við lánsfjárþörf sveitarfélaganna á árinu. Allt kapp verður lagt á að tryggja lánshæfi sjóðsins og viðhalda því trausti sem fjárfestar hafa á skuldbindingum hans. Lánasjóðurinn mun að öðru leyti starfa í meginatriðum líkt og undanfarin ár þar sem stefnt hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að útvega sveitarfélögunum lánsfé á hagstæðum kjörum. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 24. ágúst 2011 í starfsstöð sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Kynningin hefst kl. 08:30. Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949. |
|||
|