|
|||
2010-08-31 11:10:02 CEST 2010-08-31 11:11:05 CEST REGULATED INFORMATION Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - ÁrsreikningurLeiðrétting - Árshlutareikningur fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2010 - Frétt birt 2010-08-31 10:57:38Leiðrétting: Viðhengi í fyrri frétt voru ekki rétt. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500 millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti. Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til skuldareigenda. Þann 30.júní 2010 námu eftirstöðvar lánsins 268,8 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. Tekjuafgangur sambandsins á tímabilinu 1/1 - 30/6 2010 nam um 540 þúsundum kr. og eigið fé þann 30/6 2010 nam 40,9 milljónum kr. samkvæmt árshlutareikningi. Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. Berglind Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu. |
|||
|