2012-08-24 13:21:06 CEST

2012-08-24 13:22:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Fyrirtækjafréttir

Fréttatilkynning vegna dómsmáls


Miðvikudaginn 22. ágúst sl., var dómtekið mál sem viðskiptavinur
Byggðastofnunar höfðaði gegn stofnuninni til þess að fá úr því skorið hvort
skuldabréf stofnunarinnar í erlendri mynt væru lögmætir samningar um lán í
erlendri mynt eða hvort þau fælu í sér ólögmæt gengislán.  Dómsúrskurðar
Héraðsdóms er að vænta innan fjögurra vikna.  Það er álit Byggðastofnunar og
lögmanna hennar að skuldabréf stofnunarinnar séu um lán í erlendri mynt en ekki
ólögmæt gengislán. 

Heildarútlán Byggðastofnunar í erlendum myntum nema rúmum 8 milljörðum og er
ljóst að komist dómstólar að þeirri niðurstöðu að lán stofnunarinnar í erlendri
mynt feli í sér ólögmæt gengislán og að þau beri að endurreikna, mun það hafa
veruleg áhrif á fjárhagsstöðu stofnunarinnar. 

Telja má næsta víst að hver sem niðurstaða Héraðsdóms verður, verði henni
áfrýjað til Hæstaréttar Íslands. 


         Nánari upplýsingar veitir Hjalti Árnason, forstöðumaður lögfræðisviðs
Byggðastofnunar, í síma 455 5400, netfang hjalti@byggdastofnun.is