|
|||
2012-08-28 10:35:13 CEST 2012-08-28 10:36:14 CEST REGULATED INFORMATION Reykjanesbær - FyrirtækjafréttirReykjanesbær selur skuldabréf og greiðir niður skuldirReykjanesbær hefur selt skuldabréf sem bæjarfélagið eignaðist við sölu á HS orku til Geysis Green Energy og síðar Magma Energy. Kaupandi bréfsins er Fagfjárfestasjóðurinn ORK sem rekinn er af Rekstrarfélagi Virðingar hf og er fjármagnaður af lífeyrissjóðum og fagfjárfestum. Kaupverðið nemur tæpum 6,3 milljörðum króna. Sjóðurinn hefur greitt bæjarsjóði Reykjanesbæjar um 3,5 milljarða króna í peningum og um 500 milljónir í markaðsskuldabréfum en samkvæmt samkomulagi milli kaupanda og seljanda fer lokagreiðslan fram eftir 5 ár við uppgjör á skuldabréfinu. Í framhaldi af sölu bréfsins greiðir bærinn erlent lán. Þar með hefur bæjarsjóður náð að greiða öll erlend lán bæjarins. Fjármagnið verður jafnframt nýtt til að greiða upp skammtimalán við lánastofnanir og aðrar skamtímakröfur. Um 870 milljónir króna verða lagðar til Reykjaneshafnar. Það voru fyrirtækjaráðgjöf Virðingar hf og Centra fyrirtækjaráðgjöf sem sáu um sölu bréfsins og ráðgjöf vegna viðskiptanna. |
|||
|