2013-12-20 12:28:04 CET
2013-12-20 12:29:05 CET
REGULATED INFORMATION
Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir
Lánsfjármögnun Regins atvinnuhúsnæðis ehf.
hefði verið við Íslandsbanka um að annast skuldabréfaútboð fyrir Regin
atvinnuhúsnæði ehf. Útboðið fór fram með sölu eignatryggðra skuldabréfa þar sem
til tryggingar eru fasteignir í eigu félagsins. Undanfarnar vikur hefur verið
unnið að skilmálum fjármögnunarinnar auk áreiðanleikakönnunnar á safninu.
Þeirri vinnu er nú lokið og hefur hún farið fram án athugasemda og mun umræddri
lánsfjármögnun endanlega ljúka í janúar 2014. Fjármögnunin er verðtryggð með
jöfnum afborgunum til 30 ára og ber 3,85% fasta vexti en gjalddagar eru tvisvar
á ári. Heimilt er að greiða upp lánið eftir 5 ár. Í upphafi var stefnt að
heildarstærð skuldabréfaflokksins gæti orðið allt að 10 milljarðar króna að
nafnvirði. Áætlað var að selja í þessu útboði 5 - 8 milljarða. Umframeftirspurn
varð eftir skuldabréfum félagsins og  bárust áskriftir fyrir 9,5 milljarða
króna að nafnvirði. Mun úthlutun skuldabréfanna fara fram aðra vikuna í janúar
2014. Skuldabréf tengd fjármögnuninni verða skráð á Nasdaq OMX Iceland en
Íslandsbanki verður umsjónaraðili skráningar. Lánveitandi til Regins
atvinnuhúsnæðis ehf. og útgefandi eignatryggðu skuldabréfanna er REG3A
sem mun fara stækkandi í framtíðinni. Nú þegar hefur verið lokið við
endurfjármögnun á dótturfélögum félagsins sem hýsa Egilshöll og Smáralind og er
þetta því skref í að ljúka við endurfjármögnun samstæðu Regins