|
|||
2014-03-13 17:36:01 CET 2014-03-13 17:36:22 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 5 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 5 mánaða víxillinn á 6,00% flötum vöxtum (verð: 97,5134) og 6 mánaða víxillinn á 6,05% flötum vöxtum (verð: 97,0005). Tilboðum var tekið í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1,4 ma. kr. að nafnvirði og að fjárhæð 1,3 ma. kr. í 6 mánaða víxilinn. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 6,85 ma. kr. Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 20.mars næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187 / 844 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1768687] |
|||
|