|
|||
![]() |
|||
2013-08-29 16:24:54 CEST 2013-08-29 16:25:55 CEST REGLERAD INFORMATION Reykjavíkurborg - ÁrsreikningurSex mánaða uppgjör samstæðu Reykjavíkurborgar lagt framAfkoman betri en áætlað var Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - júní 2013 var lagður fram í borgarráði í dag, 29. ágúst 2013. Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - júní 2013 var lagður fram í borgarráði í dag fimmtudaginn 29. ágúst. Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um 1.819 milljónir (mkr) en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 416 mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 1.403 mkr betri en áætlun gerði ráð fyrir. Viðsnúningurinn er einkum vegna þess að tekjur aukast en þær voru 1.978 mkr umfram áætlun og matsbreytingum fjárfestingareigna, 430 mkr. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 8.638 mkr sem er 2.316 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir og 1.553 mkr betri afkoma en á sama tíma árið 2012. Niðurstaðan sýnir að rekstur samstæðunnar er að styrkjast. Frá og með ársbyrjun 2013 breytti Reykjavíkurborg reikningsskilaaðferðum sínum á þann hátt að fjárfestingaeignir Félagsbústaða hf. eru færðar á gangverði í samanteknum árshlutareikningi Reykjavíkurborgar í samræmi við lög um ársreikninga en þær hafa áður verið færðar samkvæmt kostnaðarverðsaðferð. Fjárfestingaeignir og eigið fé A og B hluta þann 1. janúar 2013 hækkuðu um 18,1 milljarð kr. vegna þessara breytinga. Ef notaðar væru óbreyttar reikningsskilareglur líkt og undanfarin ár, þá næmi rekstrartap tímabilsins hjá Félagsbústöðum 547 mkr. en hagnaður nam 83 mkr. Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok tímabilsins samtals tæpum 470 milljörðum króna en heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru tæpir 304 milljarðar króna. Eigið fé var tæpir 166 milljarðar króna en þar af nam hlutdeild meðeigenda tæpum 8.5 milljörðum króna. Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 1.947 mkr en gert var ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 3.335 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því betri en gert var ráð fyrir, sem nemur 1.388 mkr. sem rekja má til hærri skatttekna, annarra tekna og hlutfallslega minni hækkunar útgjalda. Rekstrarniðurstaða tímabilsins var 860 mkr betri en á sama tíma árið 2012. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 1.459 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 3.048 mkr. Niðurstaðan er því 1.589 mkr betri en áætlun gerði ráð fyrir. Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Eiginfjárhlutfall, skuldahlutfall og sjóðstreymi samstæðunnar er einnig að styrkjast. Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf. |
|||
|