|
|||
2013-08-29 19:08:12 CEST 2013-08-29 19:09:12 CEST HB Grandi hf. - Viðskipti stjórnendaHB Grandi - TilkynningSvöluhraun ehf keypti í dag 31,44% hlut í Fiskveiðahlutafélaginu Venusi hf. Ingibjörg Björnsdóttir er fruminnherji í HB Granda hf. og seljandi helmings ofangreinds hlutar eða 15,72% hlutar í Fiskveiðahlutafélaginu Venusi hf. Kristján Loftsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson eru fruminherjar í HB Granda hf. og stjórnarmenn í Svöluhrauni ehf. Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. á 39,50% hlut í Hval hf, en dótturfélag þess Vogun hf á 40,31% hlut í HB Granda hf og 37,90% hlut í Hampiðjunni hf sem á 9,43% hlut í HB Granda hf. Fiskveiðahlutafélagið Venus hf á 3,42% hlut í HB Granda hf og 14,70% hlut í Hampiðjunni hf. |
|||
|