2011-03-10 19:08:08 CET

2011-03-10 19:09:09 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Reitir II - Ársreikningur

Afkoma Reita II á árinu 2010





Tap Reita II ehf. (áður Landsafls ehf.) á árinu 2010 nam 627 milljónum króna
samanborið við 4.450 milljón króna tap á árinu áður. Rekstrarhagnaður félagsins
á tímabilinu nam 1.129 milljónum króna samanborið við 1.343 milljónir króna á
árinu 2009. 

Horfur fyrir árið 2011 eru ágætar en vænta má að rekstur félagsins haldi áfram
að vera í járnum. 

Lykiltölur:

  -- Heildareignir námu 21.130 milljónum króna þann 31. desember 2010 sem er
     lækkun um 102 milljón krónur á árinu.
  -- Eigið fé félagsins nam 3.222 milljónum króna á sama tíma.
  -- Rekstrartekjur ársins námu námu 1.632 milljónum króna samanborið við 1.743
     milljónir króna á sama tíma árið áður.

Reitir II á og rekur 18 fasteignir á Íslandi og er félagið í 100% eigu Reita
fasteignafélags hf. Nánari upplýsingar um afkomu Reita fasteignafélags má finna
á www.reitir.is. 

Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita
Sími 575 9000
einar@reitir.is